Ísland pólerað

,,Ég á höfundaréttinn að vörumerkinu ‘Lost in Iceland’.”

— Ewa Marcinek

Pálína Jónsdóttir er höfundur leikgerðar og leikstjóri ​Ísland Pólerað(Polishing Iceland) sem byggir á sjálfsævisögulegu smásagnasafni pólska rithöfundarins Ewu Marcinek. Leikverkið kjarnast um sögu pólsks innflytjanda og þær áskoranir sem felast í því að samlagast íslensku samfélagi. ​

Ísland pólerað er skynörvandi líkamsleikhús sem leikur á mærum gamans og alvöru í ringlureið leitarinnar að mannlegum tengslum og skilningi, umfram orðin ein. Efniviður sýningarinnar er leikinn á þremur tungumálum, ensku, íslensku og pólsku. Flytjendur eru frá Póllandi, Íslandi og Danmörku.

Ísland pólerað var frumsýnt íTjarnarbío þann 11. mars 2020.

 

☆ ☆ ☆ ☆

,,Það er léttur ljóðrænn tónn í sýningunni, húmor og ljúsfsár írónía. Allt borið fram af örlæti og aflsappaðri fimi. Eins og nafnið bendir til: fágað. Óvenjuleg og skemmtileg heimspekileg revía sem allir geta notið”. 

— Þorgeir Tryggvason, Morgunblaðið

,,Hreyf­ingar leik­ar­anna þriggja eru skýrt og vel skipu­lagð­ar, ekk­ert smá­at­riði er til­viljun háð heldur hluti af frá­sögn­inni og miðlar merk­ingu; þessi vinnu­brögð eru fáséð á íslensku leik­sviði og væri svo sann­ar­lega gaman að sjá áhrifa af þessum vinnu­brögðum gæta víð­ar.

— Jakob S. Jónsson, Kjarninn

poster.jpg

Leikarar: Magdalena Tworek, Michael Richardt, Pétur Óskar Sigurðsson
Leikgerð, leikstjórn & búningar: Pálína Jónsdóttir
Höfundur og verkefnastjóri: Ewa Marcinek
Dramatúrg & sviðsstjóri: angela rawlings
Tónlist & hljóðhönnun: Anna Halldórsdóttir
Ljósahönnuður: Juliette Louste
Leikmunahönnun: Michael Godden
Leikmunasmíði: David Nelson
Búningagerð: Rakel Snorradóttir

Markaðs-og framleiðsluteymi: Bryndís Jónatansdóttir, Claire Paugam, Emma-Line Solander Aubry, Kim Wagenaar, Martyna Daniel, Naila Zahin Ana, Patrik Ontkovic

Reykjavík Ensemble þakkir eftirtöldum aðilum aðstoð og stuðning við gerð sýningarinnar: Aleksandra Koluder, Dansverkstæðið, Hertex, IÐNÓ, Irma, Juan Camilo Román Estrada, Jördis Richter, Marín Björt Valtýsdóttir, Rauði Krossinn, Tinna Þorvalds Önnudóttir.

Styrkt af Reykjavíkurborg & Tjarnarbíó