Ég kem alltaf aftur
Verkið er leikhúsgjörningur tileinkaður minningu og leikhúsarfleifð pólska leikhúshöfundarins Tadeusz Kantor en hann var gestur Listahátíðar árið 1990 með frammúrstefnuleikhópi sínum Cricot2 þar sem þau sýndu Ég kem aldrei aftur.
Þrjátíu árum síðar ákvað Pálína, sem heillaðist af leikhúslist Kantors, að frumsmíða verkið Ég kem alltaf aftur í samstarfi við úrval pólskra og alþjóðlegra listamanna.
Ég kem alltaf aftur var sýnt í Listaklúbbi Listahátíðar í Iðnó í Augúst 2020 þar sem það var skapað á meðan yfirtöku REYKJAVIK ENSEMBLE stóð yfir og var kynnt sem verk í vinnslu.
Efniviður verksins var unninn upp úr rannsókn á áfallasögu pólskra einstaklinga og pólsku þjóðarinnar eða hinu ,,pólska minni” undir yfirskriftinni; að heiman í annan (íslenskan) heim. Með persónulegri nálgun og sjónarhorni inn í heim minninganna framkallast og afhjúpast ósýnilegar hugmyndir og heimar sem búa í sameiginlegri dulvitund leikhópsins. Leikgjörningurinn er þverlistrænn og leikur á mærum leikhúss, gjörninga, myndlistar og tónlistar sem eru sömu leikhúslögmál er einkenndu verk Kantors þar sem vísanir og draugar Dauðaleikhússins birtast og hverfa á mörkum draums og veruleika, lífs og dauða.
Samsköpunarverk
Leikstóri Pálína Jónsdóttir. Listamenn: Adam Świtała, Ewa Marcinek, Jördis Richter, Magdalena Tworek, Mao Alheimsdóttir, Karolina Bogusławska, Robert Zadorozny, Wiola Ujazdowska. Sérstakar þakkir fá Góði hirðirinn og Byko. Styrkt af Mennta-og menningarmálaráðuneytið, Listahátíð í Reykjavík, Reykjavíkurborg, Helgi Eiríksson og Kolsstaðir.
"Innblástur á alvörulistamenn eins og Pálínu og hennar fólk: kallar ekki fram eftiröpun heldur hvetur til dáða í eigin leit að möguleikum og viðfangsefnum”
— Þorgeir Tryggvason, Morgunblaðið
"Leiksýning, sem líkist engu öðru sem gerist og gengur á íslensku leiksviði….fallega sviðsett með nálgun við áhorfendur þannig að svið og salur Iðnós rennur saman – þar er á ferð bæði fallegur samruni leikara og áhorfenda og glæsileg sviðslausn, einföld og tilgerðarlaus."
— Jakob Jónsson, Hugrif í vinnslu, Kjarninn
"Ekki veitir af meiri fjölbreytni í íslenskum sviðslistum, og þó miklu fyrr hefði verið ...verður forvitnilegt að fylgjast með Reykjavik Ensemble í framtíðinni því ferðalagið er rétt að byrja."
— Sigríður Jónsdóttir, Fréttablaðið